Um okkur

Livio Reykjavík hóf starfsemi sína í febrúar 2016 og var stofnað af íslenskum sérfræðingum með áralanga reynslu af greiningu og meðferð frjósemisvandamála. Frá upphafi hefur markmið okkar verið að veita framúrskarandi frjósemisþjónustu byggða á þekkingu, reynslu og persónulegri umönnun.

Livio Reykjavík er hluti af Livio samsteypunni, sem er meðal leiðandi fyrirtækja á Norðurlöndum á sviði frjósemismeðferða og glasafrjóvgana.

Markmið og framtíðarsýn

Hjá Livio leggjum við áherslu á að veita faglega, örugga og persónulega þjónustu þeim sem leita til okkar vegna frjósemisvandamála eða óska eftir aðstoð við barneignir.

Við tökum á móti hverjum einstaklingi af virðingu og hlýju og leggjum okkur fram um að skapa traust og öryggi í gegnum allt meðferðarferlið. Meðferðaráætlanir eru sérsniðnar að þörfum hvers og eins og taka mið af heilsufari, aðstæðum, nýjustu þekkingu á sviði frjósemislækninga og gildandi lögum og reglum.

Gæði og fagmennska

Livio leggur metnað sinn í að bjóða upp á meðferðir samkvæmt ströngustu gæðakröfum og með árangur sem stenst samanburð við fremstu frjósemismiðstöðvar heims.

Við byggjum starf okkar á gagnreyndum meðferðum og fylgjumst stöðugt með nýjungum, rannsóknum og tækniframförum á sviði frjósemislækninga. Gæðakerfi okkar er vottað samkvæmt ISO 9001 staðlinum og við leggjum ríka áherslu á skráða verkferla, stöðugar umbætur og reglubundna þjálfun starfsfólks.

Trúnaður og virðing

Trúnaður er hornsteinn í starfi okkar. Allt starfsfólk Livio er bundið þagnarskyldu og meðhöndlar allar upplýsingar um skjólstæðinga af fyllsta trúnaði og fagmennsku.

Við leggjum jafnframt áherslu á gagnkvæma virðingu og biðjum þá sem sækja þjónustu okkar að virða einkalíf annarra skjólstæðinga sem þeir kunna að mæta á stofunni.